Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta.

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [A] og [B] f.h. [C] ehf., dags. 13. júlí 2020, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2020, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 til bátsins [D].

Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2020, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 til bátsins [D] og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 20. maí 2020, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sama dag, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Ólafsfirði í Fjallabyggð en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, sbr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 676/2019, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 4. júní 2020. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 372 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Fjallabyggðar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 675/2019, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2019/2020, sem skiptust á byggðarlögin Siglufjörð, 144 þorskígildistonn og Ólafsfjörð, 128 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Fjallabyggð með bréfi ráðuneytisins, dags. 30. desember 2019.

Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn [D] með umsókn til Fiskistofu, dags. 28. maí 2020.

Hinn 6. júlí 2020 tilkynnti Fiskistofa útgerðum á Ólafsfirði í Fjallabyggð ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til báta í byggðarlaginu. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta til bátsins [D]. Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að báturinn uppfyllti ekki skilyrði b-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 676/2019, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 um að hafa verið skráður í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2019.

Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um höfnun umsóknar um úthlutun.

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Með stjórnsýslukæru, dags. 13. júlí 2020, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærðu [A] og [B] f.h. [C] ehf., til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2020, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 til bátsins [D].

Í stjórnsýslukærunni kemur fram m.a. að kærandi hafi sótt um byggðakvóta vegna bátsins [D] en umsókninni hafi verið hafnað á þeim forsendum að báturinn hafi ekki verið skráður á Ólafsfirði 1. júlí 2019. Einnig segir í stjórnsýslukærunni að kærandi hafi skipt um bát í september 2019, félagið hafi áður átt bátinn [E], skipstjórinn og annar eigandi sé orðinn slitinn í hnjám og mjöðmum en nýi báturinn sé stærri og stöðugri og reyni þar af leiðandi ekki eins mikið á liðina. Kærendur hafi ekki áttað sig á að félagið hefði orðið að sækja um byggðakvóta fyrir gamla bátinn [E] sem félagið hafi ekki lengur verið eigandi að sem sé sá bátur hafi veitt hafi aflann sem lagður sé til grundvallar við útreikning byggðakvóta og óska eftir flutningi yfir á bátinn [D]. Ennfremur segir í stjórnsýslukærunni að kærandi hafi ekki vitað af þessu ótrúlega flækjustigi vegna 1. júlí reglunnar en vilji taka það fram að úthlutaður byggðakvóti frá síðasta fiskveiðiári hafi verið fluttur af bátnum [E] yfir á bátinn [D] eftir sölu í september. Þá segir í stjórnsýslukærunni að kærandi hafi talið að allt væri klárt og spyrji hvernig það standist sanngirnisreglur að hafna umsókn  útgerðar sem sannanlega hafi aflað þess sem sé grunnur úthlutunar byggðakvóta þegar það eina sem breytist sé verkfærið, þ.e. báturinn og ætlist til að fyrirtækið sæki um kvóta á bát í annarra eigu. Óskað sé eftir að kæranda verði úthlutaður byggðakvóti í samræmi við veiðireynslu.

Með tölvubréfi, dags. 10. ágúst 2020, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

Í umsögn Fiskistofu, dags. 21. ágúst 2020, segir m.a. að það sé afstaða Fiskistofu að kærandi hafi ekki uppfyllt þau skilyrði sem komi fram í 1. gr. reglugerðar nr. 676/2019 og hafi umsókn félagsins því verið synjað. Bátur kæranda, [D] hafi verið skráður í öðru byggðarlagi 1. júlí 2019 og skráður eigandi hafi þá verið annað félag. Samkvæmt breytingasögu í skipaskráningu hafi heimahöfn, útgerð og eiganda verið breytt 27. september 2019 í Ólafsfjörð og [C] ehf. Það hafi ekki áhrif á úrlausn málsins þótt kærendur hafi gert út aðra báta frá Ólafsfirði frá árinu 2014 og ekki sé hægt að taka tillit til aflareynslu þessara báta. Einnig hafi umrædd beiðni borist stofnuninni eftir að umsóknarfresti var lokið og ekki séu uppfyllt önnur skilyrði, sbr. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar. Út frá ofangreindu telji stofnunin að staðfesta beri ákvörðun Fiskistofu í málinu.

Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) Frétt af heimasíðu Fiskistofu, dags. 20. maí 2020. 2) Frétt af heimasíðu Fiskistofu, dags. 26. júní 2020. 3) Tölvubréf kæranda, dags. 29. júlí 2020 og 13. júlí 2020. 4) Bréf Fiskistofu, dags. 23. júní 2020. 4) Bréf Fiskistofu, dags. 6. júlí 2020. 5) Vinnslusamningar, dags. 28. maí 2020.

Með tölvubréfi, dags. 31. ágúst 2020, sendi ráðuneytið kæranda, [C] ehf., ljósrit af umsögn Fiskistofu, dags. 21. ágúst 2020, og veitti félaginu kost á að gera athugasemdir við umsögnina.

Með tölvubréfi, dags. 18. september 2020, barst ráðuneytinu svar kæranda vegna framangreinds bréfs, dags. 31. ágúst 2020, en þar segir að ekki séu gerðar athugasemdir við umsögn Fiskistofu í málinu.

 

Rökstuðningur

Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.

Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 676/2019, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta en þau eru:  a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2019 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2019. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa.

Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr.

Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 676/2019.

Með auglýsingu (IV) nr. 463/2020, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, voru sett sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Fjallabyggð, m.a. á Ólafsfirði fyrir fiskveiðiárið 2019/2020, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.

Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, reglugerð nr. 676/2019 og auglýsingu (IV) nr. 463/2020.

Báturinn [D] var ekki skráður á Ólafsfirði í Fjallabyggð 1. júlí 2019 og uppfyllti því ekki skilyrði stafliðar b 1. gr. reglugerðar nr. 676/2019 fyrir úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2019/2020.

Einnig eru ekki uppfyllt skilyrði 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 676/2019 um endurnýjun skips kæranda en ekki var óskað eftir því í umsókn að tekið yrði tillit til landaðs afla eldra skips kæranda sem ekki er lengur í eigu kæranda né voru við sölu fluttar aflahlutdeildir á milli skipanna. 

Þegar af framangreindum ástæðum eru ekki skilyrði fyrir að fallast á kröfur kæranda í máli þessu.

Þá er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður í stjórnsýslukærunni geti ekki haft áhrif á úrlausn þessa máls.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að ekki séu skilyrði fyrir að úthluta af byggðakvóta Ólafsfjarðar í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 til bátsins [D] en samkvæmt því ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2020, um að hafna umsókn kæranda, [C] ehf., um úthlutun byggðakvóta til bátsins.

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2020, um að hafna umsókn kæranda, [C] ehf., um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 til bátsins [D].


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum